Miðvikudagur, 19. desember 2007
Blysför og brenna á gamlárskvöld
Skerfirðingar, ásamt vinum og vandamönnum, ætla að kveðja árið með blysför og skemmtilegustu brennu höfuðborgarsvæðisins á strönd Skerjafjarðar. Milli jóla og nýárs verður gengið í hús í hverfinu og hinir ómissandi kyndlar boðnir til sölu og safnað verður í brennusjóð.
Blysför - Nýr staður og tími:
Aparóló kl. 20:30
Við hittumst öll kl. 20:30 á Aparóló, útivistar- og leiksvæðinu milli Einarsness og Skildinganess (sjá kort hér að neðan). Þar verður boðið upp á heitt súkkulaði með hefðbundnum varmagjafa fyrir þá sem það kjósa. Blysförin leggur af stað kl. 20:50 eftir stígnum yfir á Skildinganes, þaðan út á Bauganes og að brennunni.
Brenna og söngur:
Kveikt í kl. 21:00
Brennustæðið er á bakkanum neðan við Skildinganes 52 (sjá kort hér að neðan). Blysfarar kveikja sjálfir í brennunni með kyndlum sínum kl. 21.00, sem er hálftíma síðar en venja er. Söngtextar verða á staðnum auk hljóðfæraleikara og forsöngvara. Brennustjóri er að venju Hákon Ólafsson.
Forsjálir geta hlaðið söngtextum niður hér og prentað út fyrir kvöldið
Kyndlasala brennusjóðs milli jóla og nýárs
Gengið í hús hverfisins
Brennusjóður Skjaldar stendur undir tryggingum og öðrum kostnaði við skemmtunina. Tekjulind hans er sala á kyndlum ásamt frjálsum framlögum í bauk brennusjóðsins svo við biðjum Skerfirðinga að taka vel á móti sölufólki sem gengur í hús hverfisins milli jóla og nýárs (muna að hafa reiðufé). Verð kyndilsins er aðeins 500 kr. en baukurinn góði tekur að sjálfsögðu við frjálsum framlögum.
Um leið og kyndlarnir eru seldir biðjum við íbúa um netföng sem geta auðveldað okkur öll samskipti vegna ýmissa félags- og hagsmunamála hverfisins okkar (sjá næstu færslu hér á undan).
Um bloggið
Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði
Færsluflokkar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.