Sumarhátíð Skerfirðinga laugardaginn 16. ágúst

Skerfirðingar blása til árlegrar sumarhátíðar laugardaginn 16. ágúst í miðju hverfinu; opna svæðinu milli Bauganess og Skildinganess (framan við leikskólann Skerjagarð) og  í lundinum við Skógarróló.

Hátíðin hefst kl. 15 með ávarpi formanns Prýðifélagsins Skjaldar og margvíslegum leikjum fyrir börn.

Fullorðnir eru sérstaklega hvattir til að koma og skemmta sér með börnunum. Pétur Marteinsson, meistarflokksmaður KR, mun koma og stýra litlu knattspyrnumóti fyrir yngri hópana.

Grillaður pylsur verða í boði fyrir börnin en síðdegis, eða um kl. 18, hefst sameiginlegt grill og borðhald fyrir fullorðna í veislutjöldunum.

Enginn aðgangseyrir, engin skráning - allt sem þarf er matarbiti á grillið, drykkjarlögg og vilji til að gleðjast með góðum grönnum.

Kort af hátíðarsvæðinu

Höldum hátíðina saman og allir leggja sitt af mörkum
Prýðifélagið Skjöldur leggur til meðlæti, pylsur, brauð og drykki fyrir börnin auk matar- og drykkjaráhalda en hver og einn leggur til sinn grillmat og drykki. Þar sem við höldum hátíðina öll í sameiningu er vel þegið að þeir sem eiga útigrill, löng garðborð og fyrirferðalitla stóla komi við á svæðinu um hádeginu þegar byrjað verður að stilla upp. Skjöldur mun leigja borð og bekki auk þess sem nokkur fjöldi stóla og langborð verða til taks en líklegt er að fleiri sæti og borð muni koma sér vel.

Sjálfboðaliðar óskast!
Eigið þið grill eða garðhúsgögn, kunnið útileiki fyrir alla aldurshópa, spilið á hljóðfæri, viljið taka þátt í að skreyta og stilla upp hátíðarsvæðinu, grilla, reisa veislutjald eða ...?
Hafið samband við Arnar ritara í netfangið arnarg@gmail.com eða Fannar í netfangið fanson123@gmail.com. Allir með!

Tímasetningin
Eins og kynnt var í fréttabréfi Skjaldar fyrr í sumar var hugmyndin að blása til hátíðar með litlum fyrirvara einhverja góðviðrishelgina í júlí eða ágúst. Þegar til kom voru einfaldlega of fáar hendur tiltækar í hverfinu til að af gæti orðið auk þess sem hátíð í ágúst fékk mestan stuðning í skoðanakönnun hér á vefnum.

Styrktaraðilar
Margir aðilar veita Skerfirðingum höfðinglega afslætti eða koma til móts við hátiðarhöldin með öðrum hætti. Sérstakir styrktaraðilar í ár eru Hverfisráð Vesturbæjar, Landsbankinn og BYKO
rvik  
landsbanki
byko


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði

Íbúasamtök Skerjafjarðar

Prýðifélagið

Prýðifélagið Skjöldur, Skerjafjordur

er samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • P8140350
  • P8140354
  • P8140353
  • P8140348
  • P8140346

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband