Fimmtudagur, 21. ágúst 2008
Sannkölluð hátíðarstemmning
Nýsléttað útivistar- og leiksvæðið við Bauganes og skjólgott rjóðrið á Skógarróló, þar sem veislu- og grilltjöld, hoppkastali og leiktæki mynduðu torg í hjarta hverfisins, var umgjörðin um sannkallaða sumarhátíð Skerfirðinga sl. laugardag.
Hátíðin hófst kl. 15 með ávarpi Margrétar Gunnarsdóttur, formanns stjórnar Prýðifélagsins Skjaldar og svo tók við fótboltamót barnanna sem Pétur Marteinsson meistarflokksmaður hjá KR stýrði auk þess sem þrír félagar hans, þeir Guðmundur Reynir, Skúli Jón og Viktor Bjarki, spiluðu með börnunum.
Einbeitingin skein úr hverju andliti og allir fengu svo gullmedalíu Prýðifélagsins Skjaldar að leikum loknum.
Hoppkastali eldri krakkanna frá BYKO var engin smásmíði og vakti mikla lukku.
Efnt var til hoppkastalakeppni og sem fyrr fengu allir þátttakendur gullmedalíu til eignar.
Eftir hamaganginn runnu pylsurnar ljúflega niður. Grilltjaldið í lundinum var fjölsóttur viðkomustaður alla hátíðina.
Torgið í hjarta hátíðarsvæðisins að lokinni barnadagskrá og áður en grillveislan mikla hófst. Stóra veislutjaldið til vinstri, litla veislutjaldið til hægri og þar tók svo við grilltjald og hoppkastali. Þegar leið á kvöldið lýstu kertalugtir upp tréin.
Sumir burtfluttir Skerfirðingar láta sig ekki vanta á sumarhátíðina. Kristín Claessen frá Reynistað við Skildinganes, sem hér heilsar upp á Eggert Hjartarson í Reynisnesi, segist alltaf fylgjast vel með hverfinu sínu.
Fyrstu grillveislugestirnir sestir í stóra veislutjaldið: Ottó tjaldmeistari Prýðifélagsins Skjaldar og Kristján Skerjafjarðarskáld. Þegar tjaldið var fullsetið var svo gítarinn tekinn fram og söngurinn ómaði um lundinn.
Stjórn Prýðifélagsins Skjaldar þakkar öllum þeim fjölmörgu Skerfirðingum sem lögðu sitt af mörkum til að gera hátíðina svo eftirminnilega; hvort sem var með aðstoð við uppsetningu, frágang, ýmsa snúninga, lán á útigrillum eða garðhúsgögnum eða bara með nærveru sinni á hátíðinni.
Sérstakir styrktaraðilar þessarar sumarhátíðar voru Hverfisráð Vesturbæjar, Landsbankinn og BYKO í Vesturbæ sem lagði til glæsilega hoppkastala.
Lumi fleiri aðilar á skemmtilegum myndum frá hátíðinni eru þær vel þegnar. Sendið í netfangið arnarg@gmail.com.
Um bloggið
Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði
Færsluflokkar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.