Nágrannavarsla - Fundur í Hagaskóla 6. nóvember

Öllum heimilum í Skerjafirði er nú boðið að taka þátt í verkefninu ,,Nágrannavarsla” sem er samstarfsverkefni Hverfisráðs Vesturbæjar og Lögreglunnar í Reykjavík. Borgarstjórn Reykjavíkur hóf nágrannavörslu sem tilraunaverkefni árið 2006 í nokkrum hverfum borgarinnar, þar á meðal í Vesturbæ. Þar sem verkefnið hefur sannað gildi sitt hefur hverfisráð Vesturbæjar í samráði við borgaryfirvöld ákveðið að útfæra nágrannavörslu á fleiri stöðum í hverfinu.

Fræðslufundur vegna upphafs verkefnisins verður haldinn,  fimmtudaginn 6. nóvember nk. kl. 19:30 á sal Hagaskóla. Óskað er eftir að  a.m.k. einn fulltrúi frá hverju heimili í Skerjafirði mæti til fundarins. Gera má ráð fyrir að fundurinn standi yfir í u.þ.b. eina og hálfa klukkustund.

Nágrannavarsla er skipulögð forvörn þar sem íbúar taka höndum saman, til þess m.a. að sporna gegn innbrotum og eignatjóni. Samvinna íbúa af þessu tagi þekkist víða erlendis. Í upphafi verkefnisins fá íbúar nauðsynlegar leiðbeiningar og fræðslu, sem Þjónustumiðstöð Vesturbæjar og Lögreglan í Reykjavík hafa umsjón með. Auk þess verður sett sérstakt skilti við götuna sem gefur nágrannavörslu til kynna. Við val á götum í tilraunaverkefnið var fyrst og fremst litið til tegundar og fjölda húsa og eðli nánasta umhverfis.

Þjónustumiðstöð Breiðholts sem hefur yfirumsjón með nágrannavörsluverkefninu í Reykjavík. 

Fulltrúi Reykjavíkurborgar í samstarfi við íbúa í Skerjafirði er Trausti Jónsson frístundaráðgjafi, s. 4111700, netfang: trausti.jonsson@reykjavik.is. Af hálfu lögreglu tengiliðurinn Ásgeir Guðmundsson, netfang: asgeir@lr.is.

Stjórn Prýðifélagsins Skjaldar hvetur Skerfirðinga til að fjölmenna á fundinn.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði

Íbúasamtök Skerjafjarðar

Prýðifélagið

Prýðifélagið Skjöldur, Skerjafjordur

er samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • P8140350
  • P8140354
  • P8140353
  • P8140348
  • P8140346

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband