Aðalfundur 20. nóvember kl. 17 í safnaðarheimili Neskirkju

Stjórn Prýðifélagsins Skjaldar boðar til aðalfundar félagsins 2008.

Aðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 20. nóvember kl. 17:00 í safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg.

Dagskrá:

1. Lagabreytingar
    Sjá tillögur að breytingum á lögum ásamt greinargerð hér að neðan.

2. Skýrsla formanns um starf stjórnar

3. Reikningar

4. Kosning stjórnar

5. Umræður um áherslur í starfi næsta árs

6. Nágrannavarsla

7. Önnur mál

Tillögur að breytingum á lögum Prýðifélagsins Skjaldar, lagðar fyrir aðalfund félagsins 20. nóvember 2008

Til að auðvelda félagsmönnum að átta sig á þeim breytingum sem lagðar eru til og taka afstöðu til þeirra fylgir hér á eftir listi yfir allar breytingatillögurnar.
Fyrst er viðkomandi grein úr núgildandi lögum Skjaldar birt óbreytt (merkt Núgildandi).
Þar næst kemur lagagreinin eins og lagt er til að hún hljóði (merkt Tillaga).
Loks fylgir stutt skýring (merkt Greinargerð)


1. grein

Óbreytt:
1. Félagið heitir Prýðifélagið Skjöldur, á heimili í Reykjavík og hefur þar varnarþing. Það er hverfisfélag Skerfirðinga sunnan flugbrautar.

Tillaga:
1. Félagið heitir Prýðifélagið Skjöldur, samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugbrautar. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.

Greinargerð:
Verið er að tryggja að Prýðifélagið Skjöldur sé skilgreint sem íbúasamtök en þau gegna ákveðnu hlutverki sem málsvarar íbúar gagnvart stjórnvöldum og öðrum aðilum. Skilgreiningin er jafnframt flutt upp fyrir heimili og varnarþing og gerð að hluta af formlegu heiti félagsins.


2. grein

Óbreytt:
2. Markmið félagsins er þríþætt:
Að standa vörð um þá sameiginlegu hagsmuni íbúanna sem lúta að umhverfis- og skipulagsmálum.
Að glæða almennan áhuga á sögu og sérkennum hverfisins og hlúa að menjum þess og náttúrusérkennum.
Að stuðla að prýði í hverfinu og samheldni meðal íbúanna með skipulegu félagsstarfi í formi fræðslufunda, gönguferða, hreinsunar- og ræktunarátaka og annarra mannfagnaða.

Tillaga:
2. Markmið félagsins er eftirfarandi:
Að standa vörð um þá sameiginlegu hagsmuni íbúanna sem lúta að umhverfis- og skipulagsmálum og vinna að framfaramálum í hverfinu.
Að glæða almennan áhuga á sögu og sérkennum hverfisins og hlúa að menjum þess og náttúrusérkennum.
Að stuðla að prýði í hverfinu og samheldni meðal íbúanna.
Að starfa með borgaryfirvöldum og öðrum opinberum aðilum sem fara með málefni hverfisins og íbúa þess.
Að vera samstarfs- og samráðsvettvangur íbúa og stuðla að samstarfi við íbúasamtök annarra hverfa.

Greinargerð:
Verið er að skerpa á því að félagið geti átt frumkvæði að framfaramálum í hverfinu en sé ekki aðeins í vörninni.
Felld eru út dæmi um viðburði sem stjórn gæti staðið fyrir án þess að henni sé það þó skylt. Þar sem ákvæðið er hvort sem er alveg opið er eðlilegra að aðalfundur, félagsfundir og stjórn móti áherslur í starfi út frá þeim almenna ramma um markmið félagsins sem lögin setja.
Verið er að bæta inn hefðbundinni skilgreiningu á hlutverki íbúasamtaka og tryggja þannig stöðu Prýðifélagsins Skjaldar sem málsvara og samstarfsaðila gagnvart borgaryfirvöldum og jafnfætis öðrum íbúasamtökum í borginni.


3. grein

Óbreytt:
3. Félagsmenn geta þeir orðið sem hafa náð 16 ára aldri og styðja markmið félagsins. Þó hafa einungis þeir félagsmenn atkvæðisrétt sem búsettir eru í hverfinu auk þess sem þeir einir hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundum sem búa í hverfinu og hafa greitt félagsgjöld síðasta starfsárs.

Tillaga:
3. Allir íbúar sem eiga lögheimili í Skerjafirði sunnan flugbrautar og eru 18 ára og eldri hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundum félagsins.

Greinargerð:
Verið er að fella úr lögum félagsins verulega þrengingu á kjörgengi og atkvæðisrétti sem aldrei hefur verið fylgt í raun. Í staðinn er sett inn hefðbundin skilgreining íbúasamtaka sem er einnig í samræmi við raunverulega framkvæmd Prýðifélagsins Skjaldar undanfarin ár.


4. grein

Óbreytt:
4. Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins, kýs fimm menn í stjórn til tveggja ára, en þó þannig að tveir þeirra eru kosnir annað árið og þrír það næsta. Ef fleiri eru í kjöri en kjósa á fer fram skrifleg atkvæðagreiðsla. Þá kýs aðalfundur einn endurskoðanda og ákveður félagsgjöld.
Aðalfundur skal haldinn á fyrsta ársfjórðungi hvers árs. Til hans skal boðað með bréfi með minnst viku fyrirvara þar sem tilgreind eru staður, stund og dagskrá fundarins.
Á aðalfundi skal stjórnin gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs og leggja fram endurskoðaða reikninga fyrir það tímabil. Auk þess leggur hún fram fjárhagsáætlun og reifar áætlun um meginþætti félagsstarfsins á komandi starfsári.
Lagabreytingar öðlast því aðeins gildi að 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna á aðalfundi samþykki þær. Auk þess er á aðalafundi hægt að ræða og álykta um önnur þau mál sem samræmast markmiði félagsins, en til afgreiðslu þar koma einungis þau mál sem hafa verið kunngjörð með aðalfundarboði.

Tillaga:
4. Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins og kýs fimm aðalmenn og tvo varamenn í stjórn til tveggja ára. Stjórn skiptir sjálf með sér verkum. Þá kýs aðalfundur einn endurskoðanda.
Aðalfund skal haldinn á bilinu 1. september til 31. október á hverju ári. Til hans skal boðað með minnst viku fyrirvara með dreifibréfi til íbúa hverfisins þar sem tilgreind eru staður, stund og dagskrá fundarins.
Á aðalfundi skal stjórn gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs og leggja fram endurskoðaða reikninga fyrir það tímabil. Auk þess leggur hún fram fjárhagsáætlun og reifar áætlun um meginþætti félagsstarfsins á komandi starfsári.
Auk þess er á aðalafundi hægt að ræða og álykta um önnur þau mál sem samræmast markmiði félagsins, en til afgreiðslu þar koma einungis þau mál sem hafa verið kunngjörð með aðalfundarboði.
Lagabreytingar öðlast því aðeins gildi að 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna á aðalfundi samþykki þær.
Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi þar sem tillögunnar er getið í fundarboði og 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna samþykki hana. Verði samþykkt að leggja félagið niður skal varðveita eignir þess í banka þar til annað félag er stofnað með sambærilegum tilgangi á félagssvæðinu.

Greinargerð:
Verið er að færa stjórnarkjör til samræmis við raunverulega framkvæmd síðustu ára þar sem öll stjórnin er kjörin á hverjum aðalfundi. Skilyrði um framkvæmd stjórnarkjörs á aðalfundi eru felld niður og þar með vísað á hefðbundin fundarsköp þar sem skylt er að verða við ósk um skriflega atkvæðagreiðslu.
Aðalfundur er færður inn á það tímabil sem hefð hefur skapast fyrir og gefur nýrri stjórn kost á að hefja undirbúning hátíðarhalda um áramót. Í stað þess að þess að skilyrða fundarboð við „bréflega“ er sett „dreifibréf“ sem þýðir að ekki þarf að stíla fundarboð sem borin eru út til íbúa á hvern og einn félagsmann.
Verið að setja skilyrði fyrir afgreiðslu annarra mála í beint samhengi við lögbundna dagskrá aðalfundar sem er að finna í óbreyttri 3. málsgrein 4. greinar laganna.
Lagabreytingaskilyrði eru sett í sérstaka málsgrein.
Bætt er inn grein um slit félagsins ef til slíks myndi koma og hvað ætti þá að verða um mögulegar eignir þess. Slík grein skiptir einkum máli gagnvart þeim aðilum sem kynnu að vilja styrkja félagið og tryggja að fjármunir verði aðeins nýttir í þágu markmiða þess.


5. grein

Óbreytt:
5. Stjórn félagins fer með æðsta vald þess milli aðalfunda og skipuleggur félagsstarfið, ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins og boðar til aðalfunda og almennra félagsfunda.
Stjórninni ber að kynna sér eins og kostur er þau skipulagsáform og þær opinberu framkvæmdir sem augljóslega varða fyrrnefnda almenna hagsmuni íbúanna. Ber henni að gera félagsmönnum grein fyrir þeim áformum og er hún málsvari þeirra gagnvart viðeigandi yfirvöldum.
Ef fjórðungur félagsmanna óskar eftir almennum félagsfundi um tiltekið málefni skal stjórnin undirbúa og halda slíkan fund innan 10 daga frá því að óskin kom fram.
Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kýs stjórnin formann og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Auk þess getur hún skipað starfshópa vegna einstakra verkefna. Hún skal halda a.m.k. fjóra stjórnarfundi á hverju starfsári.

Tillaga:
5. Stjórn félagins fer með æðsta vald þess milli aðalfunda og skipuleggur félagsstarfið, ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins og boðar til aðalfunda og almennra félagsfunda.
Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kýs stjórnin formann og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Auk þess getur hún skipað starfshópa vegna einstakra verkefna. Hún skal halda a.m.k. fjóra stjórnarfundi á hverju starfsári.
Stjórninni ber að kynna sér eins og kostur er þau skipulagsáform og þær opinberu framkvæmdir sem augljóslega varða fyrrnefnda almenna hagsmuni íbúanna. Ber henni að gera félagsmönnum grein fyrir þeim áformum og er hún málsvari þeirra gagnvart viðeigandi yfirvöldum.
Ef 20 félagsmenn óska skriflega eftir almennum félagsfundi um ákveðið málefni skal stjórnin undirbúa og halda slíkan fund með tilteknu fundarefni innan 10 daga frá því að óskin kom fram.

Greinargerð:
Málsgreinin um verkaskiptingu stjórnar er færð ofar í lagagreinina og sett næst á eftir málsgreininni um hlutverk stjórnar.
Skilgreindur er sá fjöldi félagsmanna sem þarf til að fá fram félagsfund þar sem búið er að skilgreina félagið sem íbúasamtök allra með lögheimili á félagssvæðinu og því ekki hægt að miða við ákveðið hlutfall. Auk þess er bætt inn að beiðni skuli skrifleg og að fundurinn skuli vera um umbeðið fundarefni.


6. grein

Óbreytt:
6. Lög þessi öðlast þegar gildi við samþykki meirihluta stofnfundar félagsins, fimmtudaginn 1. september 1994.

Tillaga:
6. Lög þessi öðlast þegar gildi við samþykki meirihluta stofnfundar félagsins, fimmtudaginn 1. september 1994. Breytingar á lögum félagsins öðlast gildi þegar við samþykki áskilins meirihluta aðalfundar 2008.

Greinargerð:
Verið að taka af allan vafa um gildistöku breyttra laga svo önnur störf aðalfundar og stjórnar strax í kjölfarið taki mið af þeim auk þess sem breytingasögu laganna er haldið til haga í þessari grein.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði

Íbúasamtök Skerjafjarðar

Prýðifélagið

Prýðifélagið Skjöldur, Skerjafjordur

er samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • P8140350
  • P8140354
  • P8140353
  • P8140348
  • P8140346

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband