Sunnudagur, 23. nóvember 2008
Skýrsla formanns um starf stjórnar
Lögð fyrir aðalfund Prýðifélagsins Skjaldar, 20. nóvember 2008:
Allmörg mál hafa verið í vinnslu síðastliðið ár hjá stjórn Prýðifélagsins. Hér verður aðeins stiklað á því sem hæst bar.
Á starfsári stjórnarinnar tókst loks að fá í gang endurbætur á sjóvarnargarðinum fyrir neðan Skildinganes 22 til 28 en þetta hefur verið baráttumál Prýðifélagsins Skaldar árum saman. Brýnt var orðið að hefjast handa, ekki aðeins til að verja byggðina ágangi sjávar heldur er garðurinn meðal merkra minja og á borgarminjaskrá.
Annað baráttumál stjórnar Prýðifélagsins Skjaldar árum saman komst í höfn á starfsárinu. Samþykkt var í Borgarráði Reykjavíkur að slétta úr hluta túnsins á leik- og útivistarsvæðinu milli Bauganess og Skildinganess og setja þar niður mörk. Þetta hefur verið baráttumál hjá stjórn Prýðifélagsins í mörg herrans ár. Nú í sumar lauk því máli farsællega.
Í upphafi árs 2008 stóð Prýðifélagið fyrir súkkulaðidrykkju og blysför að árlegri brennu okkar Skerfirðinga. Að þessu sinni var ekki hægt að kveikja í brennunni á Gamlárskvöld vegna veðurs og því var brennan á þrettándanum. Safnast var saman við leikvöllinn fyrir aftan Skildinganes 10 og fyrir blysförina var tilkynnt að leikvöllurinn yrði héðan í frá kallaður Jónuróló eftir Jónu Sigurjónsdóttur sem lést í maí 2005. Jóna var dagmamma á árum áður og notaði leikvöllinn mikið enda bjó hún á Reynivöllum, við hliðina á Jónuróló. Stjórnin er að kanna kostnað við að láta útbúa skilti við Jónuróló.
Formaður stjórnar fundaði með forsvarsmönnum Strætó og óskaði eftir því að akstur strætisvagna frá Skerjafirði yrði tengdur í gegnum Vesturbæinn. Með því fengist tenging við Melaskóla, Hagaskóla, matvöruverslanir, Neskirkju, Sundlaug Vesturbæjar, apótek, KR, tónlistarskóla og Vesturgarð. Ekki var tekið vel í þessa hugmynd en vonandi verður henni haldið á lofti og áfram barist í því að tengja Skerjafjörðinn betur Vesturbænum enda tilheyrum við honum með alla þjónustu.
Árleg sumarhátíð Skerjafjarðar var haldin upp úr miðjum ágúst. Hátíðin var mjög vel sótt enda mætti fólk frá þriðjungi allra húsa í Skerjafirði. Að þessu sinni fengum við gesti úr meistaraflokki KR til að koma og spila fótbolta við börnin og um leið var nýi völlurinn vígður. Þetta gerði mikla lukku og fengu öll börnin medalíu í leikslok. Að auki voru hoppkastalar fyrir börnin. Borgarfulltrúum Reykjavíkurborgar var boðið á hátíðina og sáu Kjartan Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sér fært að mæta og áttu þeir góða stund með hverfisbúum. Að auki kom Vala Ingimarsdóttir formaður hverfaráðs Vesturbæjar á hátíðina. Hátíðin var að þessu sinni haldin í lundinum í Skógarróló sem tengist leik- og útivistarsvæðinu milli Bauganess og Skildinganess. Þar er veðursæld mikil og vakti staðsetningin lukku meðal þátttakenda.
Stjórn Prýðifélagsins hefur mikið rætt um umferðaröryggi í hverfinu. Stefnt er að því að fá hámarkshraða við Einarsnes lækkaðan í 30 km/klst. Þá er áhugi fyrir að fá skilti sem segir á hvaða hraða bíllinn er þegar hann ekur inn í hverfið (líkt og er við Melaskóla). Þá er ekið allt of hratt Bauganesið og vilji er fyrir því að fá götunni breytt, helst í vistgötu. Allavega að setja fleiri hraðahindranir því þarna stendur leikskólinn okkar og skólabíllinn ekur götuna svo þarna er mikið af börnum við götuna. Þá er beygjan við Bauganes 3 og 5 mjög hættuleg og því væri æskilegast að götunni yrði breytt í vistgötu, líkt og Þórsgötu.
Með samstarfi við foreldraráð Melaskóla og skólastjórann, Björn Pétursson, fékkst samþykkt að öll börn í Melaskóla megi taka skólabílinn heim (sem búa í Skerjafirði) en til margra ára hafa 10 ára börn og eldri þurft að taka strætó á Suðurgötu.
Ýtt var að stað nágrannagæslu í hverfinu í samvinnu við Vesturgarð og lögregluna. Kynningarfundur var nú fyrr í mánuðinum og skipaðir voru götustjórar og hverfisstjóri. Hverfisstjóri verkefnisins er Ívar Pálsson til heimilis að Skildinganesi 28.
Mikið hefur verið fjallað um að fá gangstéttina fyrir neðan flugbraut lagaða og helst færða þannig að hún liggi sjávarmegin við ljósastaurana. Þetta mál er enn í vinnslu.
Að loknum aðalfundi Prýðifélagsins Skjaldar 2007 voru sjö aðalmenn í stjórn og engir varamenn. Í raun var stjórn mynduð af öllum þeim sem áhuga höfðu á að starfa með henni. Í lok júlí gekk einn stjórnarmanna úr stjórn en enginn fyllti það skarð. Ein af fyrstu ákvörðunum stjórnar var að ráðast í löngu tímabæra endurskoðun á lögum félagsins með það í huga að færa lögin til samræmis við raunverulega framkvæmd síðustu ára og treysta stöðu Prýðifélagsins Skjaldar sem raunverulegra íbúasamtaka Skerjafjarðar. Því hlutverki hefur Skjöldur í raun gegnt og allt starf félagsins og uppbygging miðast við það hlutverk þótt lög félagsins hafi í raun kveðið á um aðra skipan mála. Fyrir þessum aðalfundi liggur afrakstur þessarar endurskoðunar.
Að lokum þakka ég stjórnarmönnum fyrir samstarfið og vona að til stjórnarsetu gefi kost á sér fólk sem hefur áhuga á að vinna í þágu allra hverfisbúa.
Margrét Gunnarsdóttir
Um bloggið
Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði
Færsluflokkar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.