Föstudagur, 19. desember 2008
Kyndlasala Brennusjóðs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. desember 2008
Fallegustu jólaskreytingarnar 2008 - Sendið tilnefningar
Prýðifélagið Skjöldur stendur fyrir samkeppni um best skreytta hús og lóð í Skerjafirði. Hverfisbúar, bæði börn og fullorðnir, eru hvattir til að senda tilnefningar á netfangið skerjafjordur@gmail.com.
Óháð dómnefnd tekur mið af þeim og fer um hverfið fyrir áramót í leit að fallegustu jólaskreytingunum. Þeir sem hafa ekki þegar sett upp jólaskraut og seríur í glugga og garða gefst því enn ráðrúm til þess.
Vegleg verðlaun verða veitt á Skógarrólósamkomunni á gamlárskvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. desember 2008
Eggert Hjartarson nýr formaður Prýðifélagsins Skjaldar
Nýkjörin stjórn Prýðifélagsins Skjaldar hefur skipt með sér verkum. Nýr formaður er Eggert Hjartarson, Reynisnesi við Skildinganes, en var fyrsti formaður Prýðifélagsins Skjaldar. Ritari er Ottó Eðvarð Guðjónsson. Ásdís Káradóttir gegnir áfram starfi gjaldkera.
Sjá lista yfir fulltrúa í stjórn ásamt netföngum hér á vefnum.
Breytingar á stjórn
Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar bað Fannar Jónsson um að varamaður tæki sæti sitt í aðalstjórn. Samkomulag varð um að Ottó Eðvarð Guðjónsson tæki við í aðalstjórn en Fannar féllst á að vera varamaður svo áfram eru tveir varamenn fyrir aðalstjórnarfulltrúana fimm.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði
Færsluflokkar