Myndir úr Skerjafirði á vef Skjaldar - Snjáldurskinnuhópur stofnaður

Stjórn Prýðifélagsins Skjaldar vinnur nú að því að koma gömlum myndum úr Skerjafirði á stafrænt form og birta m.a. hér á vefnum. Fyrsti vísirinn að því er myndamappa með myndum frá sumarhátíð hverfisins sem haldin var við enda Skeljaness.

Íbúar sem luma á myndum úr Skerjafirði eru hvattir til að hafa samband við stjórnarmeðlimi og eins er gaman ef kunnugir senda vefstjóra línu með nöfnum og öðrum upplýsingum um það sem fyrir augu ber á myndunum sem hér munu birtast. Netfangið er arnarg@gmail.com. Vefstjóri veitir líka viðtöku nýrri myndum úr hverfinu, svo sem frá áramótagleði og sumarhátíðum. 

Til að efla enn samskiptin og auðvelda fólki að deila myndum með nágrönnum, skrifa inn upplýsingar um birtar myndir eða merkja inn nöfn þeirra sem þar birtast hefur Skjöldur stofnað hópinn Skerfirðingar á Facebook. Þeir sem eru skráðir þar inn ættu endilega að leita hópinn uppi, skrá sig og senda öðrum Skerfirðingum boð um þátttöku


Velheppnuð áramótagleði Skerfirðinga

Eftirvænting á Skógarróló við upphaf blysfarar 

Fjöldi íbúa safnaðist saman í lundinum við Skógarróló til að fá heitt súkkulaði og kveikja í kyndlum. Sjaldan hafa jafn margir lagt upp í blysförin og gæti breytt tímasetning átt þátt í því en dagskrá var seinkað nokkuð.

Kyndlar og súkkulaði afgreitt af fagmennsku

Við upphaf blysfarar afhenti stjórn Prýðifélagsins Skjaldar í fyrsta sinn verðlaun fyrir fallegustu jólaskreytingarnar í Skerjafirði 2008. Þau Kolla og Haukur í Einarsnesi 24 hlutu verðlaunin að þessu sinni fyrir mjög stílhreina og bjarta rauða lýsingu í myndarlegum trjám beggja vegna hússins.

Kolla og Haukur Einarsnesi 24 fengu jólaskreytingaverðlaunin

Gangan hélt af stað kl. 21:00 og hélt vel hópinn svo allir voru komnir að brennunni þegar kveikt var í. Þar var hraustlega tekið undir með Sigvalda Kaldalóns sem stjórnaði fjöldasöngnum við undirleik Einars Rúnarssonar. Brennustjóri var Hákon Ólafsson að venju. Ánægjulegt er að engir brennugesta freistuðust til að kveikja í flugeldum við brennuna.

Við göngum svo léttir í lundu ...

Nokkrar myndir eru birtar í nýju albúmi hér á vef Skjaldar en þeir sem eiga fleiri myndir og vilja deila þeim eru hvattir til að senda þær í netfangið arnarg@gmail.com.


Áramótablysför og brenna Skerfirðinga

Kyndla vora hefjum hátt, horfið kveðjum ár!

Skerfirðingar, ásamt vinum sínum og vandamönnum, hittast að venju á gamlárskvöld, minnast liðins árs og fagna því nýja með blysför og brennu. Milli jóla og nýárs verður gengið í hús í hverfinu og kyndlar boðnir til sölu til styrktar brennusjóðnum okkar.

Heitt súkkulaði í Skógarróló kl. 20:30
Í ár ætlum við að hittast kl. 20:30 á „Skógarróló“, þ.e. í trjálundinum bak við Bauganes 12 (sjá kort hér að neðan). Þar verður boðið upp á heitt súkkulaði með rjóma (og „styrkt“ ef vill). 

Blysför kl. 21:00 – brenna kl. 21:15
Blysförin hefst kl. 21:00 (sjá kort á baksíðu). Brennustæðið er á bakkanum neðan við Skildinganes 52. Sigvaldi Kaldalóns stjórnar fjöldasöng og Einar Rúnarsson leikur undir á harmoniku. Brennu-stjóri er að venju Hákon Ólafsson.

Brennukort

Engir flugeldar á brennu!
Munið að af öryggisástæðum er öll meðferð flugelda og annarra skotelda sem hætta stafar af bönnuð við brennuna og í næsta nágrenni við hana. Þar er aðeins leyfilegt að nota stjörnuljós og blys (þó ekki skotblys). 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði

Íbúasamtök Skerjafjarðar

Prýðifélagið

Prýðifélagið Skjöldur, Skerjafjordur

er samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • P8140350
  • P8140354
  • P8140353
  • P8140348
  • P8140346

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband