Fimmtudagur, 21. ágúst 2008
Sannkölluð hátíðarstemmning
Nýsléttað útivistar- og leiksvæðið við Bauganes og skjólgott rjóðrið á Skógarróló, þar sem veislu- og grilltjöld, hoppkastali og leiktæki mynduðu torg í hjarta hverfisins, var umgjörðin um sannkallaða sumarhátíð Skerfirðinga sl. laugardag.
Hátíðin hófst kl. 15 með ávarpi Margrétar Gunnarsdóttur, formanns stjórnar Prýðifélagsins Skjaldar og svo tók við fótboltamót barnanna sem Pétur Marteinsson meistarflokksmaður hjá KR stýrði auk þess sem þrír félagar hans, þeir Guðmundur Reynir, Skúli Jón og Viktor Bjarki, spiluðu með börnunum.
Einbeitingin skein úr hverju andliti og allir fengu svo gullmedalíu Prýðifélagsins Skjaldar að leikum loknum.
Hoppkastali eldri krakkanna frá BYKO var engin smásmíði og vakti mikla lukku.
Efnt var til hoppkastalakeppni og sem fyrr fengu allir þátttakendur gullmedalíu til eignar.
Eftir hamaganginn runnu pylsurnar ljúflega niður. Grilltjaldið í lundinum var fjölsóttur viðkomustaður alla hátíðina.
Torgið í hjarta hátíðarsvæðisins að lokinni barnadagskrá og áður en grillveislan mikla hófst. Stóra veislutjaldið til vinstri, litla veislutjaldið til hægri og þar tók svo við grilltjald og hoppkastali. Þegar leið á kvöldið lýstu kertalugtir upp tréin.
Sumir burtfluttir Skerfirðingar láta sig ekki vanta á sumarhátíðina. Kristín Claessen frá Reynistað við Skildinganes, sem hér heilsar upp á Eggert Hjartarson í Reynisnesi, segist alltaf fylgjast vel með hverfinu sínu.
Fyrstu grillveislugestirnir sestir í stóra veislutjaldið: Ottó tjaldmeistari Prýðifélagsins Skjaldar og Kristján Skerjafjarðarskáld. Þegar tjaldið var fullsetið var svo gítarinn tekinn fram og söngurinn ómaði um lundinn.
Stjórn Prýðifélagsins Skjaldar þakkar öllum þeim fjölmörgu Skerfirðingum sem lögðu sitt af mörkum til að gera hátíðina svo eftirminnilega; hvort sem var með aðstoð við uppsetningu, frágang, ýmsa snúninga, lán á útigrillum eða garðhúsgögnum eða bara með nærveru sinni á hátíðinni.
Sérstakir styrktaraðilar þessarar sumarhátíðar voru Hverfisráð Vesturbæjar, Landsbankinn og BYKO í Vesturbæ sem lagði til glæsilega hoppkastala.
Lumi fleiri aðilar á skemmtilegum myndum frá hátíðinni eru þær vel þegnar. Sendið í netfangið arnarg@gmail.com.
Bloggar | Breytt 25.8.2008 kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 9. ágúst 2008
Sumarhátíð Skerfirðinga laugardaginn 16. ágúst
Skerfirðingar blása til árlegrar sumarhátíðar laugardaginn 16. ágúst í miðju hverfinu; opna svæðinu milli Bauganess og Skildinganess (framan við leikskólann Skerjagarð) og í lundinum við Skógarróló.
Hátíðin hefst kl. 15 með ávarpi formanns Prýðifélagsins Skjaldar og margvíslegum leikjum fyrir börn.
Fullorðnir eru sérstaklega hvattir til að koma og skemmta sér með börnunum. Pétur Marteinsson, meistarflokksmaður KR, mun koma og stýra litlu knattspyrnumóti fyrir yngri hópana.
Grillaður pylsur verða í boði fyrir börnin en síðdegis, eða um kl. 18, hefst sameiginlegt grill og borðhald fyrir fullorðna í veislutjöldunum.
Enginn aðgangseyrir, engin skráning - allt sem þarf er matarbiti á grillið, drykkjarlögg og vilji til að gleðjast með góðum grönnum.
Höldum hátíðina saman og allir leggja sitt af mörkum
Prýðifélagið Skjöldur leggur til meðlæti, pylsur, brauð og drykki fyrir börnin auk matar- og drykkjaráhalda en hver og einn leggur til sinn grillmat og drykki. Þar sem við höldum hátíðina öll í sameiningu er vel þegið að þeir sem eiga útigrill, löng garðborð og fyrirferðalitla stóla komi við á svæðinu um hádeginu þegar byrjað verður að stilla upp. Skjöldur mun leigja borð og bekki auk þess sem nokkur fjöldi stóla og langborð verða til taks en líklegt er að fleiri sæti og borð muni koma sér vel.
Sjálfboðaliðar óskast!
Eigið þið grill eða garðhúsgögn, kunnið útileiki fyrir alla aldurshópa, spilið á hljóðfæri, viljið taka þátt í að skreyta og stilla upp hátíðarsvæðinu, grilla, reisa veislutjald eða ...?
Hafið samband við Arnar ritara í netfangið arnarg@gmail.com eða Fannar í netfangið fanson123@gmail.com. Allir með!
Tímasetningin
Eins og kynnt var í fréttabréfi Skjaldar fyrr í sumar var hugmyndin að blása til hátíðar með litlum fyrirvara einhverja góðviðrishelgina í júlí eða ágúst. Þegar til kom voru einfaldlega of fáar hendur tiltækar í hverfinu til að af gæti orðið auk þess sem hátíð í ágúst fékk mestan stuðning í skoðanakönnun hér á vefnum.
Styrktaraðilar
Margir aðilar veita Skerfirðingum höfðinglega afslætti eða koma til móts við hátiðarhöldin með öðrum hætti. Sérstakir styrktaraðilar í ár eru Hverfisráð Vesturbæjar, Landsbankinn og BYKO
Bloggar | Breytt 13.8.2008 kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. júní 2008
Ósk um sýnilega löggæslu
Hér á vefnum hefur hugur Skerfirðinga til aukinnar sýnilegrar löggæslu verið kannaður. Niðurstaðan er mjög afgerandi: 85% segja já við því að þörf sé á aukningu sýnilegrar löggæslu. 10% er óviss og aðeins 5% telja gæsluna nægjanlega.
Þetta er veganesti fyrir stjórnina í frekari viðræðum við yfirvöld löggæslu í borginni.
Dagsetning sumarhátíðar
Ný stjórn Prýðifélagsins Skjaldar hyggst breyta fyrirkomulagi árlegrar sumarhátíðar Skerfirðinga og blása til hennar með tiltölulega litlum fyrirvara þegar veðurútlit er gott. Til að geta miðað við ákveðna dagsetningu og átt aðrar til vara er nú birt hér til hliðar könnun um hvaða helgi hentar flestum. Takið endilega þátt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði
Færsluflokkar