Hreinsunar- og fegrunardagur í Vesturbæ

Hverfisráð Vesturbæjar stendur fyrir hreinsunar og fegrunardegi laugardaginn 17. janúar næstkomandi milli kl. 10:30 og 13:00.

Prýðifélagið Skjöldur hvetur Skerfirðinga til að taka til hendinni. Í Skerjafirði verður hægt að fá afhenta ruslapoka við Skerjaver. Aðrir afhendingarstaðir eru við Vesturgarð, KR og á Landakotstúni.

Hverfisráðið hefur fengið til liðs við sig skátaflokk úr Ægisbúum og eru íbúar Vesturbæjar hvattir til að mæta og taka þátt í þessu uppbyggilega verkefni og stuðla þannig að hreinni og fegurri Vesturbæ. Bent er á að þeir sem ekki hafa tök á að mæta á þessum tíma er upplagt að taka til hendinni í nærumhverfi sínu eða sinni götu. Hverfisráðið vill minna á með verkefni þessu að hver og einn ber ábyrgð á umhverfi sínu og stuðla almennt að betri umgengni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði

Íbúasamtök Skerjafjarðar

Prýðifélagið

Prýðifélagið Skjöldur, Skerjafjordur

er samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • P8140350
  • P8140354
  • P8140353
  • P8140348
  • P8140346

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband