Fimmtudagur, 18. júní 2009
Sumarhátíð Skerfirðinga 20. júní
Laugardaginn 20. júní nk. verður sumarhátíð Skerfirðinga haldin með pompi og prakt.
Hátíðin hefst um morguninn með leikfimi og jógahlátrasköllum og þvínæst verður farið í sögugöngu um hverfið undir leiðsögn Þórs Magnússonar.
Gamlir góðir leikir
Um miðjan dag leika börn og fullorðnir sér saman á túninu fyrir neðan Bauganes. Að því búnu býður Prýðifélagið uppá hressingu fyrir börnin.
Sjóböð og skemmtun
Síðdegis fara svalir Skerfirðingar í sjósund og loks tekur við kvöldskemmtun með hefðbundnu grilli, söng og samveru. Tjaldað verður á græna svæðinu í miðju hverfinu og því ætti að fara vel um alla þótt veðurguðirnir bregðist.
Allir velkomnir
Allir eru hjartanlega velkomnir á sumarhátíðina, ungir sem gamlir Skerfirðingar. Loks hvetjum við fólk til að aðstoða við að stýra leikjum, grilla, setja upp tjöldin, leika á hljóðfæri, ganga frá o.fl. því að margar hendur vinna létt verk.
Dagskrá
10:00 | Zhang stýrir Tai Chi leikfimi á túninu fyrir neðan Bauganes til að koma hita í mannskapinn. |
10:30 | Hláturjóga með Ástu Valdimars á sama stað. |
11:00 | Söguganga um Skerjafjörð undir leiðsögn Þórs Magnússonar. Lagt upp frá Skógarróló. |
14:00 | Rifjum upp gamla og góða leiki á túninu neðan við Bauganes fyrir börn á öllum aldri. |
15:00 | Brenniboltakeppni fullorðnir hvattir til að taka þátt. |
16:00 | Pylsur og ís fyrir börnin. |
17:00 | Sjósund undir leiðsögn valinkunnra sjósundskappa í sjónum fyrir neðan endastöð strætó við Skeljanes. |
18:00 | Grill, samvera og söngur fram eftir kvöldi. Prýðifélagið setur upp grillin og leggur til meðlæti en gestir koma með kjöt eða fisk að vild og sjá sjálfir um matseldina. |
Um bloggið
Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði
Færsluflokkar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.