Um fegurð og fjör Skerjafjarðar

Ávarp frá formanni Prýðifélagsins Skjaldar

Prýðifélagið Skjöldur var stofnað haustið 1994. Í fyrsta fréttabréfi félagsins er sagt frá stofnfundinum, vali á nafni og fyrstu stjórn. Jean Eggert Hjartarson varð fyrsti formaður Skjaldar, Kjartan Gunnar Kjartansson varaformaður, Hákon Ólafsson ritari, Valgerður Marínósdóttir gjaldkeri og Kristján Hreinsson meðstjórnandi.

Nokkur umræða varð um nafn félagsins. Orðið prýðifélag var sótt í hugmyndir frá lokum 19. aldar um að stofna Prýðifélag Reykjavíkur, þótt þeim hugmyndum hafi ekki verið hrint í framkvæmd þá.  Skjöldur vísar hins vegar í Skildinganesjörðina, en land hennar náði áður yfir stóran hluta hverfisins.

Áhersluatriði stjórnar
Þótt margt hafi áunnist á þeim þrettán árum sem félagið hefur starfað, er annað óunnið. Í áðurnefndu fréttabréfi er t.d. minnst á þörf fyrir frágang á útivistarsvæði fyrir börn og unglinga á grænu svæði á milli Skildinganess og Bauganess.  Núverandi stjórn hefur því einbeitt sér að fáum atriðum, sem við teljum sem brýnast að koma í verk.  Þau eru:

  • Að ganga frá fyrrnefndu útivistarsvæði í miðju hverfisins.
  • Að flytja gangstétt vestan við flugbrautarenda í hæfilega fjarlægð frá akbraut. Nú er gangstéttin nánast samvaxin götunni, sem skapar fótgangandi hættu, sérstaklega þegar snjór er yfir.
  • Að styrkja sjávargarðinn neðan við Skildinganes og gera hann upp sem líkast upprunalegri mynd.

Við höfum rætt þessi atriði við borgarstjóra og fleiri innan borgarkerfisins.  Vonast er til að skriður komist á mál innan tíðar. Að auki höfum við lagt áherslu á öryggismál hverfisins og rætt þau við lögregluþjóna okkar nágrennis.

Vefur og merki Skjaldar
Loks höfum við opnað þessa vefsíðu, í því augnamiði að auka streymi upplýsinga til félagsmanna og frá þeim. Hér á vefnum og í haus nýjasta fréttabréfs félagsins birtist í fyrsta sinn nýtt merki félagsins sem er kort af götum hverfisins. Úr kortinu má sjá mynd sem margt má lesa í. Við teljum að hún sé af manni í ræðupúlti sem heldur innblásna ræðu um fegurð og fjör Skerjafjarðar.

Sumarhátíð 8. september
Fjörið ætlum við ekki síst að efla á árlegri sumarhátíð okkar þann 8. september nk. en þá höldum við m.a. götugrill í Bauganesinu í miðju hverfisins. Meira um það hér í þessari færslu.

Það er von okkar stjórnarmanna að vinna Skjaldar skili Skerjafirði og Skerfirðingum enn betra umhverfi.  Við treystum á stuðning ykkar og þátttöku.

Eggert Benedikt Guðmundsson,
formaður Prýðifélagsins Skjaldar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði

Íbúasamtök Skerjafjarðar

Prýðifélagið

Prýðifélagið Skjöldur, Skerjafjordur

er samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • P8140350
  • P8140354
  • P8140353
  • P8140348
  • P8140346

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband