Fimmtudagur, 13. maí 2010
"Sun Fun" flóamarkađur í Skerjó
13. maí sl. var haldinn "Sun Fun" flóamarkađur viđ Bauganes 3a. Ađstandendur markađarins (mest ungar fallegar konur) voru sérlega heppnir međ veđriđ og fjöldi fólks lagđi leiđ sína á markađinn og gerđu margir reifarakaup. Frúin í Bauganesi 8 keypti sér t.d. afar fallegan grćnan sumarkjól á ađeins 500 krónur og minnkaskinn um hálsinn á ţúsund kall, sem sölukonan sagđi ađ tilheyrt hefđi ömmu sinni :) Ungur drengur í Bauganesi 6 eignađist nýja íţróttaskó og ein gekk á brott međ hárkollu í hendinni og bros á vor. Ungu konurnar eru hér međ hvattar til ađ endurtaka Sun Fun reglulega.
Sjá fleiri myndir hér.
p.s. Vinsamlegast takiđ ţátt í könnuninni hér til vinstri um hvenćr í sumar helst ćtti ađ halda Skerjafjarđarhátíđina. Jens, ritstjóri Skerjafjordur.IS.
Bloggar | Breytt 17.5.2010 kl. 09:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 8. mars 2010
Fundargerđ ađalfundar Prýđifélagsins Skjaldar
Miđvikudaginn 3. mars 2010
kl.: 17:00 í safnađarheimili Neskirkju
Dagskrá:
1. Skýrsla formanns
2. Reikningar
3. Kosning stjórnar
4. Umrćđur um áherslur í starfi stjórnar
5. Önnur mál
Fundarstjóri, Ásdís Káradóttir, setur fundinn og gefur Eggerti Hjartarsyni formanni orđiđ.
1. Skýrsla formanns. Stjórnin átti fund um samgöngumál međ hverfisráđi Vesturbćjar í nóvember sl. og lagđi ţar m.a. fram tillögur um betri tengingu almenningsvagna milli Skerjafjarđar og Vesturbćjar. Uppbygging grćna svćđisins" milli Bauganess og Skildinganess sem fjölskyldusvćđis er verđugt verkefni, auk hugmynda um ađ íbúar fóstri leikvelli hverfisins. Sumarhátíđin var haldin í góđu veđri í ágúst og mćltist fjölbreytt dagskráin vel fyrir. Síđasta áramótabrenna og blysför voru fjölmennari en nokkru sinni fyrr og fóru fram í blíđskaparveđri og međ sama fyrirkomulagi og áriđ áđur. Verđlaun voru veitt í annađ sinn fyrir best skreytta hús og lóđ í hverfinu. Stjórnin fundađi ađ jafnađi einu sinni mánuđi síđasta ár. Pétri Marteinssyni hjá Framfarafélagi Vesturbćjar var bođiđ ađ sitja einn fund međ stjórninni ţar sem rćtt var um hugsanlega samvinnu.
2. Reikningar. Ásdís Káradóttir gjaldkeri fór yfir reikninga félagsins. Ađalfundur var ekki haldinn á réttum tíma samkvćmt lögum félagsins og síđasta reikningsár" nćr ţví frá ađalfundi 21. nóvember 2008 til 1. mars 2010. Fjárhagsstađa félagsins er góđ en sjóđur ţess rýrnađi ţó milli áranna 2008 og 2009. Munar ţar mestu um ađ ekki var sótt um styrki til Reykjavíkurborgar og Landsbankans líkt og fyrri ár. Reikningar félagsins voru bornir upp til samţykktar og samţykktir af öllum viđstöddum.
3. Kosning stjórnar. Kjósa skal 5 ađalmenn og 2 varamenn í stjórn samkvćmt lögum félagsins. Í núverndi stjórn hćtta Sigrún Kaya Eyfjörđ, Ásdís Káradóttir og Harpa Stefánsdóttir en áfram sitja Ottó Eđvarđ og Eggert Hjartarson. Efemía M. Guđmundsdóttir í varastjórn tekur sćti í stjórn. Ţví er kosiđ um tvo nýja stjórnarmenn og einn varamann en Fannar Birgir Jónsson situr áfram sem varamađur. Eftirtaldir íbúar gefa kost á sér í stjórn og eru einróma kjörin: Björg Kjartansdóttir, Hildur Arna Hjartardóttir og Jens Pétur Jensen. Í nýrri stjórn Prýđifélagsins sitja:
Eggert Claude Hjartarson, Reynisnesi
Björg Kjartansdóttir, Fáfnisnesi 14
Efemía M. Guđmundsdóttir, Einarsnesi 44a
Hildur Arna Hjartardóttir, Bauganesi 29a
Ottó Eđvarđ, Baugnesi 25a
Varamenn eru:
Fannar birgir Jónsson, Bauganesi 31
Jens Pétur Jensen, Bauganesi 8
4. Umrćđur um áherslur í starfi stjórnar. Rćtt um ađ leggja áfram áherslu á samgöngumál, stuđla ađ uppbyggingu opinna svćđa og styrkja íţróttaiđkun barna í hverfinu.
5. Önnur mál. Ásdís upplýsir ađ ţar sem opinn íbúafundur um íţrótta- og tómstundamál sé haldinn á sama tíma í Frostaskjóli hafi stjórnin afhent fundarstjóra ţess fundar ályktun sína um samgöngumál og fariđ fram á ađ hún yrđi lesin upp ţar.
Fleira var ekki gert og fundi slitiđ kl. 17:50.
skerjafjordur
skjoldur2010
Fundir | Breytt 13.5.2010 kl. 23:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Miđvikudagur, 10. febrúar 2010
Ađalfundur miđvikudaginn 3. mars nk.
Stjórn Prýđifélagsins Skjaldar bođar til ađalfundar félagsins miđvikudaginn 3. mars kl. 17:00 í safnađarheimili Neskirkju.
Dagskrá
1. Skýrsla formanns um starf stjórnar
2. Reikningar
3. Kosning stjórnar
4. Umrćđur um áherslur í starfi nćsta árs
5. Önnur mál
Allir íbúar Skerjafjarđar eru hvattir til ađ mćta á ađalfundinn og hafa ţannig áhrif á hverfiđ okkar - umhverfiđ í kring, umferđarmálin, hverfishátíđirnar, félagslífiđ og allt hitt sem gerir gott hverfi enn betra. Viđ skorum á ţá sem hafa áhuga á ađ starfa fyrir félagiđ ađ bjóđa sig fram. Heitt verđur á könnunni.
Veriđ velkomin - hlökkum til ađ sjá ykkur,
stjórnin
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggiđ
Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði
Fćrsluflokkar