Sumarhátíð Skerfirðinga 20. júní

Laugardaginn 20. júní nk. verður sumarhátíð Skerfirðinga haldin með pompi og prakt.

sumarhatid09_kortMorgundagskrá

Hátíðin hefst um morguninn með leikfimi og jógahlátrasköllum og þvínæst verður farið í sögugöngu um hverfið undir leiðsögn Þórs Magnússonar.

Gamlir góðir leikir

Um miðjan dag leika börn og fullorðnir sér saman á túninu fyrir neðan Bauganes. Að því búnu býður Prýðifélagið uppá hressingu fyrir börnin.

Sjóböð og skemmtun

Síðdegis fara svalir Skerfirðingar í sjósund og loks tekur við kvöldskemmtun með hefðbundnu grilli, söng og samveru. Tjaldað verður á græna svæðinu í miðju hverfinu og því ætti að fara vel um alla þótt veðurguðirnir bregðist.

Allir velkomnir

Allir eru hjartanlega velkomnir á sumarhátíðina, ungir sem gamlir Skerfirðingar. Loks hvetjum við fólk til að aðstoða við að stýra leikjum, grilla, setja upp tjöldin, leika á hljóðfæri, ganga frá o.fl. – því að margar hendur vinna létt verk.

Dagskrá

10:00Zhang stýrir Tai Chi leikfimi á túninu fyrir neðan Bauganes – til að koma hita í mannskapinn.
10:30Hláturjóga með Ástu Valdimars á sama stað.
11:00Söguganga um Skerjafjörð undir leiðsögn Þórs Magnússonar. Lagt upp frá Skógarróló.
14:00Rifjum upp gamla og góða leiki á túninu neðan við Bauganes fyrir „börn á öllum aldri“.
15:00Brenniboltakeppni – fullorðnir hvattir til að taka þátt.
16:00

Pylsur og ís fyrir börnin.

17:00Sjósund undir leiðsögn valinkunnra sjósundskappa í sjónum fyrir neðan endastöð strætó við Skeljanes.
18:00Grill, samvera og söngur fram eftir kvöldi. Prýðifélagið setur upp grillin og leggur til meðlæti en gestir koma með kjöt eða fisk að vild og sjá sjálfir um matseldina.

Sumarhátíð 20. júní nk. - ærin verkefni

Sælir kæru Skerfirðingar!
 
Hinn 20. júní nk. höldum við árlega sumarhátíð í Skerjafirði. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði, leikir og fjör fyrir börnin um miðjan daginn og grill og samvera um kvöldið.
 
Einnig stendur til að brydda upp á ýmsum nýjungum, t.d. að byrja daginn með sjósundi og Müllers-æfingum eða útileikfimi af einhverju tagi á Græna svæðinu, sögugöngum um hverfið með fróðum Skerfirðingum o.s.frv.
 
Lumið þið á fleiri góðum hugmyndum sem þið viljið ólm hjálpa til við að koma í kring? Prýðifélagið þiggur alla aðstoð með þökkum, bæði við undirbúning á næstu vikum sem og uppsetningu á tjaldi og grillum, matseld, og tónlist þegar stóri dagurinn rennur upp. Hver vill t.d. taka að sér að útbúa sönghefti og hverjir vilja stjórna söng eða spila undir á gítar eða önnur hljóðfæri?
 
Loks væri afspyrnugott og gaman að fá fólk til að koma með hugmyndir að, stjórna og taka þátt í leikjum með börnunum.
 
Bestu kveðjur ævinlega,
Ásdís (s. 8666773) og Ottó (s. 8986736)

Fundargerð stjórnar 26. maí

Stjórnarfundur Prýðifélagsins Skjaldar
Þriðjudaginn 26. maí 2009
kl.: 20:30 hjá Kayu

Mætt: Eggert, Ásdís, Harpa, Ottó og Kaya

1. Sumarhátíðin verður haldin laugardaginn 20. júní nk. Verkefnalistinn er klár og verður honum dreift milli stjórnarmanna. Áríðandi er að svara tölvupósti fljótt og skilmerkilega til að komast hjá töfum og misskilningi við undirbúninginn.

2. Jónurólóskiltið. Eggert fær upplýsingar hjá Þórði Adolfssyni fyrir skiltið á Jónuróló.

3. Græna svæðið. Eggert hefur rætt við Sigríði Rögnu Sigurðardóttur sem nú er varamaður í hverfisráði Vesturbæjar. Þau munu eiga fund innan tíðar og verður Sigríður Ragna stjórninni innan handar við framgang málsins.

4. Næsti fundur verður hjá Ottó 10. júní kl. 20:30.

Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 22:10.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Prýðifélagið Skjöldur Skerjafirði

Íbúasamtök Skerjafjarðar

Prýðifélagið

Prýðifélagið Skjöldur, Skerjafjordur

er samtök íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • P8140350
  • P8140354
  • P8140353
  • P8140348
  • P8140346

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband